Birgitta Lára

Geggjað skilurru!

22.08.2006 16:32:46 / birgitta

Hæ :)

Jæja þá er Elvar byrjaður í skóla :) Fór með hann á skólasetninguna í dag bara gaman:)
Það besta er náttla að besti vinur hans úr leikskólanum hann Ísak Már verður með honum í bekk. Mér finnst það mjög gott hver man ekki eftir hvað maður var feimin þegar maður var að byrja í fyrsta bekk.
Allavegana blendnar tilfinningar hjá manni hehe nú finnst mér ég í alvörunni vera orðin gömul hehe. Mér sýndist ég nú vera yngst þarna af foreldrunum hehe það er gott :)
Já varð bara monta mig smá yfir litla stóra stráknum mínum:)

Birgitta out:)

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 17:41:11 / birgitta

Menningarnótt:)

Hellú!!
Enn ein vinnuvikan búin alltaf nóg að gera á nordicaspa :) Gott að vera komin aftur heim og fara vinna hitta allt skemmtilega fólkið mitt :) Það er aldrei leiðinlegt í vinnunni, ekki með svona snillingum.
Já svosem lítið annað búið að gerast hjá mér í vikunni. Hehe fyrir utan mánudaginn í vinnunni þá leið bara yfir mig. Það var svo rosalega heitt inn í herbergi hjá mér að mig fór bara að svima og varð flökurt rétt náði fram þar sem Laufey snyrti greip mig bara. Það var samt opin hurðin inn í herbergi, samt var orðin 30 stiga hiti dísus. Ég fékk bara svona flass back frá spáni:) Ragnheiður framkvæmdarsjóri lét laga þetta fyrir okkur. Það er bara allt annað líf að vinna núna í herbergjunum.

Var að vinna smá í dag og svo er það bara menningarnótt!! Kristrún skvísa er komin í bæinn. Við ætlum nú að skella okkur eitthvað í byen og auðvita kemur Guðbjörg skvísa líka:)  Allavegana ætla ekki að skrifa meira í dag :) Fer síðan bráðlega að setja inn myndir frá spáni:)

Allir að kvitta!!!

Birgitta

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 12:12:00 / birgitta

Uno servesa por favor hehe

Hallo er herna a spani ad missa mig bara gaman er  nuna a bar ad fa mer sma servesa hehe. Allt ad gerast for a froduparty um daginn og svo labbadi eg og ragna heim og dad var reynt ad raena mig oh my god en dad tokst ekki dvi eg brjaladist hehe. skrifa meira um detta seinna elska ykkur oll. Kvedja fra spani.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 23:07:07 / birgitta

Verð að monta mig smá:)

silvía nótt partý 048 helgin 24-25, 004 helgin 24-25, 019 silvía nótt partý 042 aramót 077 aramót 102         

Jæja nú er sko komið að þessu já ég er að fara til spánar í mánuð :)

Það er bara svo skrítið því við pöntuðum þetta í janúar og nú er þetta bara að gerast ohhhhhhh þið getið ekki ýmindað ykkur hvað ég er spennt:)

Ég er að pakka niður og þið vitið hvernig það er!! Mér finnst ég alltaf vera að gleyma einhverju mjög óþæginleg tilfinning. Allavegana vildi bara monta mig smá:) Það er nú í lagi svona stundum:)

Vona fyrir ykkur sem eruð hérna á íslandi að veðrið eigi nú eftir að skána því ég veit að ég á eftir að koma svört heim:)

Sjáumst :)
Kveðja Gittalína á leiðinni til spánar:)

Smá myndasería svo þið munið eftir okkur hehe:) Bara grín hugsið bara við á spáni að meika það :) Hlakka líka svo til því að berglind systir er að koma líka að hitta okkur ohhh hhhhhhh Lífið er yndislegt :)

aramót 028 aramót 068 Eurovison og eitthvað 020 Eurovison og eitthvað 059 Eurovison og eitthvað 031 aramót 086 aramót 033 aramót 042             


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 21:58:50 / birgitta

Hæ:)

Já ég er bara ekki að nenna mikið að skrifa hérna en allavegana þið verðið bara að bare with me hehe:)

Vill nú bara byrja á því að óska henni Berglindi sætu systur með áfangan hún var að útskrifast gellan :) Vonandi fer hún bara að fara drífa sig heim frá danaveldinu:) Já og Bjarndís náttla líka orðin kennari svo skellti gellan sér bara til spánar:).

Fór aðeins með henni Kristrúnu niður í bæ í gær og ég hef bara ekki séð svona mikið af fólki það var bara troðið allstaðar:) Hitti mikið af skemmtilegu fólki til dæmis Ingunni sætu og Ólöfu tvíbura systur hennar Möggu. Magga mín ætla bara að senda til þín batakveðju vonandi verðuru fljót að ná þér sæta min:)

Fríða skvís er komin heim til íslands úhhh:) Bara gaman, hún er náttla alltaf jafn sæt:) Hún ætlar að halda upp á afmælið sitt næsta föstudag, við byrjum á því að fara í laugar á spa'ið já ætlum að fá okkur smá hvítvin:) Svo kemur limma að sækja okkur og keyrir okkur í partý, þegar við erum búnar að gera okkur sætar og næra okkur þá kemur limman aftur og keyrir okkur niður í bæ:) Hlakka geggjað til :)

Já svo er ég bara að fara til spánar ohh 6.júlí. Ég ætla bara að slappa af sko. Hehe fyndið Harpa vinkona mín og svava hringdu í mig og þær eru að fara með fjölskyldunni sinni líka þannig að við hittumst. Svo fékk ég lika sms frá henni Andreu sem var með okkur út á majorca í fyrra og hún er einmitt líka þarna þannig að það verður sko troðið af íslendingum á torreveja hehe snilld.
Berglind það styttist í þetta hlakka til að sjá þig :) Það verður sko gaman hjá okkur:)

Kveðja Birgitta life is wonderfull:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 23:53:28 / birgitta

uhhummm that's what i'm talking about:)

Jæja sælt veri fólkið :)
Það er svosem ekkert mikið búið að vera gerast hjá mér var bara í fríi í dag og fór í strípur og tók til :) Maður verður víst að gera það líka. Ég finn samt bara hvað mig langar að fara komast í gott sumarfrí, er það líka ekki bara þannig þegar maður veit að maður er alveg að fara frá frí þá virðist biðin endalaus:) Ég fer nú samt fyrsta júlí þannig ætti ekkert að vera væla þetta:)

Já ég verð nú bara að tala um svoldið sem ég er búin að vera pæla í hehe:) Það er svo skrítið þegar maður er svona á lausu þá eru bara allir hvað ertu ekki komin með mann eða er ekkert að gerast í karlamálum hjá þér :) Já margar af mínum yndislegu vinkonum eru alltaf að hafa áhyggur af þessu, það er eins og þær hafi meiri áhyggjur af þessu en ég:)
Ég veit ekki ég er bara ekkert að drífa mig í þessu, ég hef bara voða lítinn áhuga. Ég er sko ekkert að deyja úr einhverju karlmannsleysi nei ég á alveg yndislegt líf án þeirra hehe:)
Ég bara nenni ekki að binda mig það er eitthvað svo mikið vesen maður þarf alltaf að vera eitthvað elskan má ég fara með stelpunum í kvöld og alltaf að vera biðja um leyfi fyrir öllu hehe:)
Þegar það gerist þá bara gerist það og það er sko örugglega ekki á næstunni skal ég ykkur segja :)
þannig að þið sem eruð eitthvað að hafa áhyggjur af okkur single stelpunum ekki vera gera það því ég skal veðja við ykkur að það er sko ekkert til að hafa áhyggur af:)
Varð bara að ræða þetta en það er svosem allt í lagi ef þið vitið um einhverja rosa sæta, ríka, góða og einhverja sem hafa eitthvað í kollinum þá skal ég hugsa málið verið samt ekkert of vissar hehe:)


Eitt enn :)
I don't need a man to tell me I'm beautyful couse I already Know :)

Birgitta out lov ya all:)

» 12 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 23:49:47 / birgitta

Hæ:)

Ég er búin að vera mjög löt við þetta blogg dæmi :) Æi það er bara svo gott veður úti og maður nennir ekkert að vera hanga í tölvunni allan daginn:)

Það er samt alveg nóg búið að vera gerast:) Eva átti afmæli 27. maí orðin 23 skvísan:) Svo útskrifuðust Fannar frændi úr versló, Unnur systir úr háskólanum og Bjarndís systir úr kennaraháskólanum. Ég vil bara óska ykkur öllum til hamingju :) Fannar er núna úti í Búlgaríu að ég held að í útskriftaferð ohhh hvað það er örugglega gaman:) Ragna systir skelti sér bara til bandaríkjana hehe draumurinn hennar coming true:) Hefði nú alveg verið til í að fara líka en hún ætlar að kaupa pakka fyrir mig svo þetta er í lagi. Enda styttist líka í það að ég fari til spánar í mánuð ohhh bara mánuður í það:) SNILLD!!

Já er líka í þriggja daga fríi núna bara næs:) Skellti mér á smá djamm í gær hehe við vorum sko að halda upp á það að hún Magga snillingur var að klára sveinsprófið sitt. Að vísu var Laufey líka að klára en hún þurfti að fara í kvöldskóla og vinna í dag þannig að við verðum bara að halda upp á það með henni seinna:) Ég er alveg órtúlega stollt af ykkur stelpur mínar til hamingju:)
Ég verð samt að segja að þetta var eiginlega það skemmtilegasta djamm sem ég hef bara farið á lengi hehe. Ég fór heim til Möggu og Ingibjörg vinkona hennar var þar og við fengum okkur pístu og drukkum og kjöftuðum í smá tíma :) Svo komu bróðir hennar, vinir hans og svo hann Nonni sem er skotin í henni Möggu, og vinir hans. Við fórum í drykkjuleik og fórum svo niður í bæ á bara næstum alla staðina í bænum hehe bara gaman:) Svo fóru allir aftur heim til Möggu og ég sofnaði bara hjá henni nennti ekki að fara taka leigubíl heim:) Vaknaði svo með hann Nonna við hliðin á mér haldandi utan um mig hehe. Við vorum nefla þrjú í sama rúminu hehe hann hefði nú eiginlega átt að vera halda utan um hana Möggu :) Þetta var bara fyndið svo var svo gott veður þegar við vöknuðum og við fórum bara í smá sólbað úti á svölum.

Stelpur við verðum síðan að muna að við vorum búnar að lofa hitta gaurana frá New york í bláa lóninu klukkan 12 á sunnudag hehe:)

Svo kom mamma og elvar að sækja mig og við fórum bara á ísrúnt niður laugarveginn og grilluðum geðveikan mat. Buðum líka henni Gabrílellu og svo líka honum Stefáni frænda :) Lífið er yndislegt ohhh elska svona daga:)

Kveðja Birgitta :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 01:38:13 / birgitta

hehe:)


Hún var svo mikil ljóska að hún....

1. skilaði treflinum sem hún keypti því hann var alltof þröngur

2. gat ekki farið á vatnaskíði því hún fann ekkert vatn með brekku

3. gat ekki unnið í apoteki því lyfjaflöskurnar pössuðu ekki í ritvélina

4. varð yfir sig ánægð þegar hún kláraði púsluspil á 6mánuðum.. því það stóð 4-6 ára á kassanum

5. var föst í rúllustiga í 4 tíma útaf því að rafmagnið fór af

6. gat ekki hringt í 112 því að hún fann ekki 12 á símanum

7. þoldi ekki M&M því það er svo leiðinlegt að taka utan af þeim

8. slasaðist alvarlega þegar hún var að raka saman laufum... hún datt niðrúr tréinu

9. hvað þyðir "brrrúmmm.... skrenss! brrrrúúúúmmmm!!!..... skrens... brúúúmmm... skrens..? ljóska á bíl við blikkandi rautt ljós

10. tvær ljóskur læstu lyklana sína inní bílnum og voru að reyna komast inní hann... önnur sagði, "við verðum að vera fljótar, það er að fara að rigna og toppurinn er niðri !!"
--------------------------------------------------------------------------------------


Fun í lyftu =)

1.Þegar það er bara ein manneskja í lyftunni pikkaðu þá í öxilna á henni og láttu sem það hafi ekki verið þú.

2.Ýttu á takkanana og láttu sem þú hafir fengið straum. Brostu og fáðu þér meiri straum.

3.Spyrðu fólk hvort að þú getur ýtt á takkann fyrir þau og ýttu svo á vitlausan takka.

4.Haltu hurðinni opinni og tilkynntu að þú sért að bíða eftir vini. Eftir nokkurn tíma læturðu hurðina lokast o.g segir Halló Palli" . Hvernig var dagurinn...

5.Misstu penna og bíddu eftir að einhver taki hann upp, öskraðu þá "Hann er minn"

6.Færðu skrifborðið þitt inn í lyftuna og í hvert sinn sem einhver kemur inn í lyftuna spurðu hann þá hvort hann eigi pantaðan tíma.

7.Breiddu út Twister dúkinn þinn og spurðu hvort að allir séu ekki til í einn leik eða svo.

8.Stattu nálægt fólkinu í lyftunni og þefaðu öðru hvoru af þeim.

9.Þegar dyrnar lokast,öskraðu: ,,þetta er í lagi ekki örvænta, þær munu opnast aftuir ".

10.Fylgdu ósýnilegru flugum eftir.

11.Öskraðu: ,,hóp faðm" og neiddu alla til að faðmast.

12.Opnaðu örlitla rifu á töskunni þinni, kíktu inn í hana og spurðu ,,ertu með nógu mikið loft þarna inni"

13.Starðu á annað fólk í lyftunni, og segðu svo skelfingu lostinn: ,, Þú ert einn af ÞEIM" og taktu svo hægt eitt skref aftur á bak

14.Mættu á staðin með leikbrúðu á hendinni á þér og notaðu hana til að tala við aðra.

15.Leiktu eftir sprengjihljóðum þegar einhver ýtir á takka

---------------------------------------------------------------------------------------------

30 setningar karlmanna:

.. sem þú munt aldrei heyra karlmann segja:

1. Ég ætla að fá mér kók. Get ég fært þér eitthvað í leiðinni?

2. Ég hafði rangt fyrir mér. Þú hafðir á réttu að standa og ég biðst afsökunar á að hafa rifist við þig.

3. Brjóstin á henni eru aaaaallt of stór.

4. Stundum langar mig bara að láta halda utan um mig.

5. Jú, elskan mín. Ég ELSKA að nota smokk.

6. Það er langt síðan við höfum farið í Kringluna. Komum endilega að versla og ég skal geyma töskuna þína meðan þú mátar.

7. Ég er hættur að fara á völlinn með strákunum. Kúrum frekar saman og horfum á Pretty Woman.

8. Ég held að við höfum villst. Stoppum við næstu bensínstöð og spyrjum til vegar.

9. Það er ekki ofsögum sagt að karlmenn séu lélegir ökumenn. Þetta fífl þarna gaf ekki stefnuljós.

10. Ég er fárveikur, en ég get alveg séð um mig sjálfur.

11. Neih...mig langar ekkert að sjá brjóstin á systur þinni.

12. Ohhhh...við erum að verða of sein í kirkju.

13. Það er alltof mikið af nektaratriðum í þessari mynd.

14. Eru tengdó að koma í heimsókn aftur? ÆÐI..

15. Ég er kominn með leið á bjór. Ég ætla að fá mér trópí.

16. Allt í lagi, ég skal sofa á blauta helmingnum.

17. Ég er með alltof stórann rass.

18. Ég ætla að kaupa mér Yaris. Þeir eyða svo litlu.

19. Mér finnst frábært að skokka. Ég hef bara ekkert í við þig, elskan mín.

20. Er hægt að fá einhverja skyrtu í stíl við þessar buxur?

21. Hvar er "rauða serían" bækurnar mínar?

22. Heyrðu elskan, ég er að fara í búðina. Á ég að kaupa túrtappa eða dömubindi fyrir þig í leiðinni?

23. Klukkan er soldið margt. Klæddu þig aftur í fötin og ég skal skutla þér heim.

24. Til fjandans með enska boltann. Horfum á gamla Melrose Place þætti.

25. Ég fæ oft standpínu þegar ég horfi á Opruh Winfrey.

26. Mér finnst loðnir rassar sexy.

27. Neibb, mig langar ekki í annan bjór. Ég þarf að vinna á morgun.

28. Svakalega er Tom Cruise ýkt sætur.

30. Í guðanna bænum, farðu í nærföt kona.



» 6 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 16:06:42 / birgitta

Hæbbs:)

Já við komumst ekki áfram í eurovision en lífið gengur nú áfram:) Það er bara svo fyndið hvað við íslendingar erum alltaf vissir að við munum vinna þetta og svo komumst við ekki einu sinni upp úr þessari forkeppni:) hehe ég er nú alveg ein af þeim, en mér finnst hún Silvía bara hafa staðið sig vel! Ég veit ekki en það er mikið af fólki eitthvað pirrað út í hana og það er svo sem alveg réttlætanlegt þar sem hún var nú frekar dónaleg þarna úti en ég meina við hverju bjuggumst við??? Hún hefði kannski aðeins mátt slaka á í stjörnustælunum, kannski bara tóna það aðeins niður. Ég er samt alveg viss um að það hefði örugglega ekki breytt neinu, þannig að ég ætla bara þakka Silvíu Nótt fyrir góða skemmtum allavegana af minni hálfu:)


Ég er bara komin í helgar frí og ég elska það :) Ætla gera eitthvað skemmtilegt með Elvari á morgun, veit ekki það er einhver hátið í fjölskyldugarðinum ætli leiðin liggi bara ekki þangað:) Svo er Kristrún skvísa komin í bæinn og ætla ég nú líka að hitta hana og gera eitthvað skemmtilegt með henni:) Svo bara njóta góða veðursins hérna í borginni:) Jæja ætla að fara brasa eitthvað :)


Lov ya

Birgitta



» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 21:17:49 / birgitta

Frí:)

Jæja þá er þessi helgi að enda, var bara vinna báða dagana þannig að ég var svosem ekki mikið að brasa:) Svo er ég líka í fríi á morgun bara snilld :)
Passaði Einar krúsí smá á föstudag áður en ég fór í vinnuna og svo var ég bara hérna heima í kósý:)
Í gær ætlaði ég að hitta Fannar og Jón Þorstein frændur mína en þar sem ég bara get ekki sofið á nóttunni þessa daganna þá var ég bara búin eftir vinnudaginn. Ég veit ekki hvort ég er að verða eitthvað klikk eða sé að breytast í vampíru. Það er bara svo bjart núna úti að heilinn í mér er bara ekki að móttaka það að það sé nótt:)Allavegana lagði mig bara í nokkra tíma eftir vinnu svo vaknaði ég klukkan að verða tólf :)

Mamma doblaði mig í að koma með sér til Gabrielu og við vorum hjá henni til 4 í nótt.
Dísusss þegar við vorum að fara frá henni kemur þessi hrúga að löggubílum og sjúkrabílum og við vorum bara smeykar sko, við reyndum eitthvað að elta þá en við misstum af þeim við erum náttla bara forvitnar.(Ég veit að þið sem eruð að lesa hafið örugglega einhvern tíman ellt löggubíla.) Já þannig að við ákveðum bara að fara heim þar sem ég átti náttla vinna um morguninn og gat ekki verið í svona aksjóni alla nótt.
Svo vorum við næstum komnar heim þá er eitthvað rosa að gerast í húsi hérna rétt hjá okkur!!! Já bara löggan og alles. Það var semsagt eitthvað partý og það urðu einhver slagsmál og það var keyrt á einn og annar stunginn í hálsinn oh my god. Löggan var sem sagt að elta gaurana sem stungu einn strákinn og við mamma elta þær!! Ef við hefðum farið aðeins fyrr heim þá hefðum við bara lent í einhverju rosalegu maður. Allavegana ég trúi bara ekki að strákurinn minn sé að fara í skóla í þessu klikkaða hverfi!! Það verða sko engin helv.... partý hérna þegar hann er unglingur!!!!

Kveðja Birgitta.

» 10 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 23:39:28 / birgitta

hæbbs:)

Já setti inn fullt af nýjum

 myndum!!!! Þið verðið að tékka á

 þessu mar:) það fóru samt einhverjar

 myndir inn í gamlar möppur kann

greinilega ekkert á þetta:)


Já ég er búin að vera arfaslök í að blogga þessa dagana sorry :( æi nenni þessu ekki alltaf hehe. Allavegana reyni að bæta mig :)


Já þessi helgi var æðisleg átti að vera í fríi, en Linnet var veik á laugardag þannig að ég mætti og vann fyrir hana frá 2-5 æi maður reynir að redda. Þótt það geti nú verið leiðinlegt en það er bara svona stundum.
Það var líka svo gott veður úti og ég var í pínu sólskyns skapi þannig að ég lét smá vinnu ekki á mig fá :)

Á föstudaginn fór ég heim til hennar Helgu og við bjuggum til fullt af alveg geðveikum pizzum. Svo bauð Helga Þórarni og Fannari þeir voru mjög ánægðir með matinn, enda Unnur útí á Kanarí.
Helga er náttla snillingur skiluurru í matargerð:) Takk Helga mín fyrir kvöldið ;)

Já allavegana þá fórum við nordica spa gengið út að borða á laugardagskvöld. Við fórum á Thorvaldssen og fengum alveg geggjaðan mat og nokkra drykki hehe :)
Síðan var ferðinni heitið á Rex og þar hitti ég hana Guðbjörgu skvísu sem átti afmæli í gær til hamingju skvísa:) Vorum þar í smá stund síðan fórum við á pravda og dilluðum aðeins rassinn bara gaman hehe. Magga sæta þurfti að vinna á sunnudag en þannig að hún fór aðeins fyrr heim en það var alveg geggjað gaman hjá okkur:) Allavegan vill bara þakka öllum fyrir yndislegt kvöld:) 'Eg hef bara ekki skemmt mér svona vel í langan tíma, það var bara komin sól þegar í var að fara heim elska sumarið:)

Jæja það styttist í spánar ferðina það er það eina sem ég hugsa um ohhhhhhhh:)
Já svo kemur Fríða sæta heim bráðum loksins:) Þá verður sko planað annað svona kvöld förum út að borða og allan pakkann:)

Jæja lov ya
Birgitta


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 22:38:33 / birgitta

Hell ye:)


Men are like ........Laxatives ...... They irritate the shit out of you.

Men are like ........ Bananas ...... The older they get, the less firm they are.

Men are like ........ Vacations ...... They never seem to be long enough.

Men are like ........ Weather ...... Nothing can be done to change them.

Men are like ........blenders .... You need One, but you're not quite sure why.

Men are like ........ Chocolate Bars ...... Sweet, smooth, &they usually head right for your hips.

Men are like ....... Commercials ...... You can't believe a word they say.

Men are like ........ Department Stores ...... Their clothes are always 1/2 off.

Men are like ........ Government Bonds ...... They take soooooooo long to mature.

Men are like ........ Mascara ...... They usually run at the first sign of emotion.

Men are like ........ Popcorn . They satisfy you, but only for a little while.

Men are like . Snowstorms ...... You never know when they're coming, how many inches you'll get or how long it will last.

Men are like ........ Lava Lamps ...... Fun to look at, but not very bright.

Men are like ........ Parking Spots ........ All the good ones are taken, the rest are handicapped.

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 12:06:13 / birgitta

Hvað er klukkan:)

Jæja hún Telma klukkaði mig og hérna kemur þetta:)

1.Aldrei í lífi mínu: Mundi ég láta einhvern karl bjána ráða yfir mér:)

2. Þegar ég var fimm ára: Þá var ég og Ragna í Búlgaríu með mömmu og pabba:) Við vorum í húsi rétt hjá skóg og við Ragna fórum að leika okkur við hunda sem komu útúr skóginum, en það sem við vissum ekki var að þetta voru úlfar. Pabbi sagði okkur að koma strax inn þegar hann sá hvað var í gangi. Enda mjög gott þar sem úlfar réðust á barn daginn eftir. Við vorum samt búnar að vera leika við þá í svona hálftíma hehe sýnir kannski best hvað við erum klikkaðar:)

3. Menntaskóla árin voru: Hehe þau verða alltaf eftirminnileg hjá mér bara gaman:) Ég og Telma skemmtum okkur konunglega í MA. Þegar við vorum að gera heimasíðu fyrir tölvutímann og vorum stundum til níu tíu á kvöldin í skólanum, orðnar geðveikar í skapinu hehe. Við fórum líka stundum í hádegisverð á subway ef við nenntum ekki í næsta tíma:)


4. Ég hitti einu sinni: Shannon Elisabeth sem lék brjóstagelluna í american pie, gaurana í metalica, gaurana í prodigdy og Quintin Tarantino.

5. Einu sinni þegar ég var á bar: Hehe ég verð nú að segja að mínar bestu minningar um einhvern bar eru frá bells á majorca:) Þar fór lennti ég í alskonar skemmtilegum mómentum t.d. froðupartýum og eitthvað. SNILLD:)


6. Síðastliðna nótt: Var ég vakandi í tölvunni til klukkan 3 í einhverjum leik sem ég er bara hooked á oh my god:) Hann er inn á leikanet.is og heitir valentino. Maður getur orðið geðveikur á honum og getur ekki hætt:) Svo fór mín bara inn í draumaheim Birgittu:)

7. Næsta skipti sem ég fer í kirkju: uhhh veit ekki kannski næstu jól hver veit.

8. Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég : Sé ég pálmatréið okkar sem við erum búnar að setja ljós á geggjað flott:)

9. Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég: Sé ég bara fram á gang og útidyrahurðina:)

10.Þegar ég verð gömul/gamall: Ætla ég fyrst fremst að eiga íbúð á spáni og vera bara þar á ströndinni með kokteil:) Svo get ég nú komið hérna heim og farið í bingó og bjórkvöld með öllu hinu gamla fólkinu:) hehe


12. Um þetta leyti á næsta ári: Veit ekki ætli ég verði ekki bara enn að vinna á Nordica spa:) Já ekki nema að ég vinni í lottóinu og opni bara mína eigin snyrtistofu:)


13. Betra nafn fyrir mig væri: Birgittos ekki spurning :)

14. Ég á erfitt með að skilja: Nöldur hvað er með það:) jú og auðvita fordóma og fólk með svo mikið egó að það er vont að horfa niður:)

15. Þú veist mér líkar vel við þig ef: Ef ég tala við þig hehe:)

16. Fyrsta manneskjan til að eignast barn í þínum vinahóp væri: Það var ég :)

17. Farðu eftir ráðum mínum: Því ég hef ALLTAF rétt fyrir mér, ekki nema að þú viljir að ég segi við þig að ég hafi sagt þér það:)

18. Uppáhalds morgunmaturinn minn er: Ég bara get ekki borðað morgunmat.

19. Afhverju myndir þú hata mig: Já það er spurning, þú verður bara eiga það við þig því mér er alveg sama þótt einhver út í bæ hatar mig hehehehe.

20. Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup ef: Ég ætla ekki að gifta mig!

21. Heimurinn mætti alveg vera án: Stríða.

22. Ég myndi frekar sleikja svínsrass enn að: Hlusta á nöldur, smjatt djöf...... please borða með munnin lokaðan takk.

23. Bréfaklemmur eru nytsamlegri en: Já já það er bara svona gaman ha:)

24. Ef ég geri e-ð vel, er það: Bara eins og alltaf :)

25.Myndir sem þú fellir tár yfir eru: Æi er nú ekkert svo mikið fyrir svolleis myndir en Titanic var nú svolítið sorgleg, dirty dancing, ghost jú það eru örugglega einhverjar fleiri:)

Ég klukka Berglindi sætu systir, Rögnu megababe, Fríðu skvísu , Möggu súper babe, Sylvía skvís og náttla Beggu úber babe :)

Kveðja Birgitta:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 22:02:04 / birgitta

Myndir:)

















» 7 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 16:41:40 / birgitta

Hellú:)

Já páskarnir búnir og farin á fullt aftur í vinnuna :)
Það er svo æðislegt að fá svona frí, nema að maður verður smá latur hehe:) Elvar fór til pabba síns á akureyri yfir alla páskana það var svoldið skrítið að hafa hann ekki hérna heima. Það voru bara engir páskar hjá mér mig vantaði svo að fela páska eggið hans og svolleis nei nei það var rosalega gaman hjá þeim:) Hann verður nú samt að vera heima næstu páska. Ég skellti mér aðeins á djammið bara hehe það var ekkert smá gaman ætla einmitt að sætja inn fullt af myndum hérna eftir svo allir geti skoðað.

Já svo er bara komið sumar vhúuuu bara gaman elska sumarið :) Gleðilegt sumar allir!!!!
Það þýðir líka það að það styttist óðfluga að því að ég er að fara í sumarfrí í heilan mánuð til spánar:) Það verður svo gaman, geggjað gaman skilurrr. Hitti Guðbjörgu, Berglindi og Kristrúnu skvísur í gær. Takk fyrir kvöldið stelpur ég hef bara ekki skemmt mér svona vel heillengi. Við löbbuðum út um allt hehe það var greinilega ekkert mikið af fólki á djamminu við fórum á rex, óliver, pravda, sólon og ekkert var að heilla okkur þannig að við enduðum á glaumbar hehe já það var mjög gaman þar:) Ekki kannski staðurinn sem ég hefði haldið en við áttum dansgólfið og réðum sko algjörlega hvað var spilað :) Any ways ætla fara brasa eitthvað :)

P.s munið myndirnar:)

Gleðilegt sumar aftur og nú eiga sko allir að kvitta:)
Kveðja Birgitta býfluga:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Vinnan
Þetta snýst allt um lífstíl :)