Birgitta Lára

Geggjað skilurru!

07.05.2006 23:39:28 / birgitta

hæbbs:)

Já setti inn fullt af nýjum

 myndum!!!! Þið verðið að tékka á

 þessu mar:) það fóru samt einhverjar

 myndir inn í gamlar möppur kann

greinilega ekkert á þetta:)


Já ég er búin að vera arfaslök í að blogga þessa dagana sorry :( æi nenni þessu ekki alltaf hehe. Allavegana reyni að bæta mig :)


Já þessi helgi var æðisleg átti að vera í fríi, en Linnet var veik á laugardag þannig að ég mætti og vann fyrir hana frá 2-5 æi maður reynir að redda. Þótt það geti nú verið leiðinlegt en það er bara svona stundum.
Það var líka svo gott veður úti og ég var í pínu sólskyns skapi þannig að ég lét smá vinnu ekki á mig fá :)

Á föstudaginn fór ég heim til hennar Helgu og við bjuggum til fullt af alveg geðveikum pizzum. Svo bauð Helga Þórarni og Fannari þeir voru mjög ánægðir með matinn, enda Unnur útí á Kanarí.
Helga er náttla snillingur skiluurru í matargerð:) Takk Helga mín fyrir kvöldið ;)

Já allavegana þá fórum við nordica spa gengið út að borða á laugardagskvöld. Við fórum á Thorvaldssen og fengum alveg geggjaðan mat og nokkra drykki hehe :)
Síðan var ferðinni heitið á Rex og þar hitti ég hana Guðbjörgu skvísu sem átti afmæli í gær til hamingju skvísa:) Vorum þar í smá stund síðan fórum við á pravda og dilluðum aðeins rassinn bara gaman hehe. Magga sæta þurfti að vinna á sunnudag en þannig að hún fór aðeins fyrr heim en það var alveg geggjað gaman hjá okkur:) Allavegan vill bara þakka öllum fyrir yndislegt kvöld:) 'Eg hef bara ekki skemmt mér svona vel í langan tíma, það var bara komin sól þegar í var að fara heim elska sumarið:)

Jæja það styttist í spánar ferðina það er það eina sem ég hugsa um ohhhhhhhh:)
Já svo kemur Fríða sæta heim bráðum loksins:) Þá verður sko planað annað svona kvöld förum út að borða og allan pakkann:)

Jæja lov ya
Birgitta

magga skrifaði
Þú vars ææææði!! Skemmtilegust sko.. haha vildi bara að ég hefði verið meira i glasi god damn it ;) En þú áttir heldur betur kvöldið, svo varstu líka svo sæt og brún og með krullur og í rauðum bol og.. ja eða þú veist hvað ég meina; yndi bara, hahha
Ragna skrifaði
bara kvitta
birgitta skrifaði
hehe það var bara gaman :) ég ætla að setja inn myndir braðum :) takk Magga þú varst náttla bara flott skilurrr
Helga Þórdís skrifaði
omg hlakka til að sjá myndirnar....Langar svo að sjá hvernig hárið á þér var ;-) En takk sömuleiðis fyrir pizzurnar....og snillingur hver segi ég nú bara......eigum við að rifja upp hver gerði hvað ha..... Eins og flestir vita þá eru þær hrikalega góðar pizzurnar hjá Biggu...en alltaf gaman þegar maður er kallaður snilli.... Sjáumst bæjó Helga systir
Berglind skrifaði
Ohhh... ég hefði sko viljað vera í pizzunni hjá Helgu :( Knús frá Áló
Guðbjörg Gréta skrifaði
Takk fyrir afmæliskveðjuna! Og já það var bara geðveikt gaman hjá okkur á laugardagskvöldið og nóttina og morguninn. Já og það var nú meira ævintýrið með þennan skuggalega "ekki" leigubílstjóra. Maður getur nú bara lent í svona ævintýrum með þér. Knús og takk fyrir mig! p.s. gaman að kynnast ykkur Nordica skvísur Kveðja Guðbjörg Gréta
Fríða. skrifaði
Hlakka til að hitta þig þegar ég kem á klakann vúúhú er bara mjög spennt að koma heim!!
birgtta skrifaði
Hæ skvís:) Þoli ekki þetta staðferstingar dæmi hérna, get alveg orðið brjáluð:) Helga mín við erum náttla öll systkynin snilldar kokkar hún mamma er alveg búin að sjá til þess:) Berglind við hugsuðum sko til þín og við verðum bara að endurtaka þetta þegar þú kemur :) Já Guðbjörg hehe þetta var náttla bara snilldar kvöld ég get sko alveg sagt ykkur fullt af sögum um svona ekki leigubílstjóra hehe. Þessi var náttla bara eitthvað klikk eitthvað að rugla um að hann væri sko alltaf að skulta strákunum í mínus og með einhvern svona djöfla límmiða sem Krummi átti víst að hafa gefið honum :) Fríða I just can t wait girl:)
Fríða skrifaði
Bara yndislegt að sjá myndir af þessu fallega fólki á Nordica. Ooh takk, gaman að vera með. I miss you all :) Sendi þér e-mail fljótlega sweetie

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Vinnan
Þetta snýst allt um lífstíl :)